BD
BD var stofnað 1897 og hefur síðan þá verið leiðandi á markaðnum með framúrskarandi vöruúrval í þágu læknisfræðinnar (BD Medical) og lífvísinda (BD Life Science). BD bíður mikið úrval af sprautum, nálum (venjulegar og fyrir insulínpenna), æðaleggjum, nálum fyrir mænudeyfingar, glösum fyrir blóðsýnatökur, vörum fyrir lyfjablöndun og lyfjaframleiðslu, frumuflæðisjám, mótefnum, ætum, prófum og tækjum til bakteríugreininga, PCR tæki, tæki og próf til greiningar á kynsjúkdómum, tæki og próf til veirugreiningar og svo mætti lengi telja. BD leggur mikla áherslu á öryggi þeirra sem eru að vinna með sjúklinga og er því leiðandi í framleiðslu nála með öryggisloka hvort heldur sem um er að ræða venjulegar nálar, blóðtökunálar eða æðaleggi.
Vefsíða BD Medical