Atos

Atos Medical hefur gert það að markmiði sínu að veita fólki sem andar um barkarauf röddina aftur. Atos Medical hefur áratuga langa reynslu í hönnun búnaðar í nánu samstarfi við notendur. Síðan Provox talventlarnir komu fyrst á markað fyrir um 30 árum hefur Atos verið leiðandi á markaði við hönnun og þróun á búnaði fyrir einstaklinga sem farið hafa í barkakýlisnám. Atos hefur sinnt þörfum yfir 70.000 einstaklinga í yfir 70 löndum. Yfirgripsmikill vörulisti býr yfir fullkomnu úrvali af tal og lungna endurhæfingarbúnaði. Þetta fjölbreytta úrval af hágæða Provox vörum gerir það að verkum að hægt er að sérsníða lausn fyrir hvern notanda. Til að vera leiðandi á markaði þarf fleira að koma til en vöruþróun og því hefur Atos Medical lagt ríka áherslu á stuðning við klínískar rannsóknir og menntun sérfræðinga og fræðsla til notenda. Fjallað hefur verið um Provox vörurnar í yfir 150 ritrýndum ritum. Atos Medical styður og heldur nokkur hundruð ráðstefna og fræðsluáætlana á ári hverju.

Vefsíða Atos Medical
Close
Close

Fyrirspurn um vöru