VW Amarok DOKA 4x4

Léttur útkallsbíll á Akureyri
Slökkviliðið á Akureyri hefur tekið í notkun nýjan útkallsbíl byggðan á VW Amarok DOKA 4x4, hannaðan fyrir skjót viðbrögð og fyrstu aðgerðir á vettvangi. Bíllinn er sá fyrsti sem afhentur er eftir að Fastus heilsa tók við sem umboðsaðili Egenes og Rosenbauer á Íslandi.
Undanfarið hefur Fastus heilsa kynnt og selt vörur frá Egenes og Rosenbauer á íslenskum markaði, meðal annars dælur til viðbragðs við eldgosum, auk hjálma og hlífðarfatnaðar. Afhending þessa bíls markar næsta skref í samstarfinu og fleiri bílar eru þegar í undirbúningi.
Bíllinn er byggður á VW Amarok DOKA Pickup 4x4, 205 hestöflum og 10 gíra sjálfskiptingu. Í mannskapsrými er „hreint svæði“ með sætum fyrir fimm manna áhöfn.
Pallurinn er yfirbyggður með samlæstum topphengdum hlerum. Innrétting bílsins er skipulögð með góðri aðstöðu fyrir handslökkvitæki ljós og annan búnað.
Bíllinn er útbúinn Rosenbauer RFC POLYCAFS SL100 þrýstiloftsknúnum froðuslökkvibúnaði með 100 lítra vatnstanki og innbyggðum froðugeymi sem hefur mikla slökkvigetu miðað við stærð og þyngd bílsins og hentar vel í léttan útkallsbíl.