Scania 4x4 fyrir slökkvilið Hellu

FiltersSíur
0
Raða eftirArrow head down
Upphafsröðun
Ódýrast efst
Dýrast efst

Dælubíll á Scania 4x4 undirvagni

Brunavarnir Rangárvallasýslu á Hellu hafa tekið í notkun nýjan dælubíl á Scania P500B 4x4 undirvagni með Egenes ál yfirbyggingu framleidda í Flekkefjord í Noregi. Með þessari afhendingu kemur Egenes slökkvibíll aftur til Íslands eftir langt hlé.

Bíllinn er hannaður með þarfir íslenskra slökkviliða að leiðarljósi og byggir á traustu samstarfi við Egenes Brannteknikk og Rosenbauer. Sjálfberandi ál yfirbygging frá Egenes býður upp á gott skápapláss, sérsmíðaða innréttingu og samfellda tengingu milli stjórnklefa og yfirbyggingar. Dælurými er frostvarið og vatns- og froðutankar eru einangraðir inni í yfirbyggingunni, sem hentar vel íslenskum aðstæðum.

Undirvagn og yfirbygging

Undirvagninn er Scania P500B 4x4 með 500 hestafla vél og sjálfskiptingu. Áhafnarklefi er af gerðinni Scania CP28L með Bostrom reykdýfarasætum.

Yfirbyggingin er framleidd hjá Egenes í Noregi og byggð úr áli með áherslu á endingargóð efni, gott aðgengi og skýra uppsetningu búnaðar.

Dælu- og froðukerfi frá Rosenbauer

Bíllinn er búinn Rosenbauer NH35 slökkvidælu með afköstum allt að 3500 l/mín við 10 bör og 400 l/mín við 40 bör. Dælan getur verið bæði lág- og háþrýst samtímis.

Einnig er bíllinn útbúinn Rosenbauer CAFS froðukerfi og CUTTEX kerfi. Stjórnun fer fram í gegnum Rosenbauer LCS 3.0 stjórnkerfi með skjám bæði við dælu og í stýrishúsi.

Búnaður og aðstaða

Bíllinn er útbúinn monitorum frá Rosenbauer á þaki og stuðara, háþrýsti- og froðuslöngukerfum, björgunarverkfærum, reykköfunarbúnaði, ljósamastri og fjölbreyttum aukabúnaði. Uppsetning og búnaðarval endurspeglar þarfir slökkviliðsins og aðstæður á starfssvæðinu.

Close
Síur
Verðbil
Minus sign
0100.000
0 kr.100.000 kr.
Close

Fyrirspurn um vöru