Heliodent Plus röntgentæki

Er kominn tími á nýtt röntgentæki?
Heliodent Plus er intraoral röntgentæki frá Dentsply Sirona. Tækið nýtir DC tækni sem skilar skörpum myndum með góðum kontrasti og er samhæft bæði stafrænum skynjurum og hefðbundnum röntgenfilmum.
Armur tækisins er hannaður til að auðvelda stillingar og heldur röntgenhausnum stöðugum án þess að hann sígi. Heliodent Plus er í boði sem veggfest, gólfstandandi eða loftfest lausn sem einfaldar uppsetningu í mismunandi rýmum.
Tækið er hannað með geislavernd í huga og notar lágan geislaskammt án þess að skerða myndgæði. Heliodent Plus er því áreiðanleg lausn fyrir nútíma tannlæknastofur.
Við bjóðum nú Heliodent Plus á frábæru tilboðsverði til 30. júní 2026
Verð: 806.000 kr. m.vsk
Fullt verð 1.240.000 kr.(þú sparar 434.000 kr)
Hafðu samband og tryggðu þér eintak á þessu frábæra verði.

Ertu að leita að heildarlausn?
Heildarlausn í röntgen fyrir tannlækna skapar betra flæði í meðferðum og auðveldar ákvarðanatöku. Vel valin tæki og hugbúnaður gera myndatöku og úrvinnslu skilvirkari. Utanumhald um röntgengögn og sögu sjúklings verður skipullagðara og veitir skýra yfirsýn yfir stöðu hans hverju sinni.
Þessi pakki er heildarlausn í röntgen fyrir tannlæknastofur:
Heliodent Plus: öflugt og nákvæmt röntgentæki
Xios XG Supreme: hágæða skynjari sem fangar skýrar myndir samstundis
Rinn XCP-ORA: tryggir nákvæma staðsetningu skynjara eða filmu
Sidexis 4: notendavænn hugbúnaður sem birtir, vinnur og geymir myndir á einfaldan og öruggan hátt
Heildarlausn sem skilar betri greiningu og einfaldar vinnuflæðið.
Hægt er að velja heildarlausnina eða einstaka hluta eftir þínum þörfum.



