
X-Smart Pro+ handstykki
Vörunúmer: DENT6793462
Dentsply Sirona X-Smart Pro contra angle handstykki er hannað til notkunar með X-Smart Pro og X-Smart Pro+ endó mótorum. Handstykkið er með smáu hausformi sem auðveldar aðgengi að meðferðarsvæði.
Handstykkið hefur innbyggt 10-ljósa LED lýsingarkerfi með góðri lýsingu sem auðveldar staðsetningu og opnun rótarganga og veitir góða yfirsýn og stjórn á meðan meðferð stendur yfir.
Handstykkið er stillanlegt í 360° sem gefur aukið frelsi í vinnustellingum. Það nýtist vel við meðferð sjúklinga með takmarkaða munnopnun þar sem gott aðgengi skiptir máli.



