Hvernig panta ég Dexcom og Omnipod?

FiltersSíur
0
Raða eftirArrow head down
Upphafsröðun
Ódýrast efst
Dýrast efst

Pöntunarferli fyrir Dexcom og Omnipod

Þú setur vörurnar í körfuna í vefversluninni og gengið er frá pöntun þar á öruggan og aðgengilegan hátt.
Athugið: Til að panta þarf að vera með gilda innkaupaheimild frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ).
Ekki er hægt að versla aðrar vörur á sama tíma og pöntun er gerð.
Hvernig panta ég úr vefversluninni?
  • Farðu á fastusheilsa.is/sykursyki og veldu vöruna sem þú vilt panta eða veldu hana úr listanum hér fyrir neðan.
  • Stilltu magnið sem þú vilt panta og smelltu á „Bæta í körfu“. Athugaðu að þak er á því magni sem panta má í einu.
  • Smelltu á körfutáknið uppi í hægra horninu og veldu „Ganga frá kaupum“.
    • Þú verður beðin(n) um að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum ef þú ert ekki þegar innskráð(ur).
  • Veldu afhendinamáta.
  • Smelltu á "Greiðslumáti" og veldu „Greitt af Sjúkratryggingum Íslands“
  • Staðfestu pöntunina.

 

Þú færð staðfestingarpóst þegar pöntunin hefur verið móttekin.

 Ef eitthvað er óljóst, ekki hika við að hafa samband!

Sérfræðingur - sykursýkis- og mótefnavörur
Mobile 2 Icon
+354 580 3954
Sérfræðingur - sykursýkis- og mótefnavörur
Mobile 2 Icon
+354 580 3977
Close
Síur
Verðbil
Minus sign
0100.000
0 kr.100.000 kr.
Close

Fyrirspurn um vöru