Símar og Dexcom
Flestir iPhone og Samsung símar virka með Dexcom, þó ekki allir. Að auki eru nokkrar aðrar símtegundir sem virka. Því er mikilvægt að skoða vel hvaða símar virka og hvaða símar virka ekki með Dexcom áður en keyptur er nýr sími. Ef þú ert ekki með síma sem virkar er auðvelt að setja Dexcom upp í sérstakt stjórntæki sem tengist Dexcom og þannig hægt að skoða blóðsykurtölu þína í rauntíma.
Hægt er að skoða á heimasíðu Dexcom lista yfir þá síma sem virka á eftirfarandi slóð (listinn er uppfærður reglulega):
https://www.dexcom.com/en-IS/compatibility/select
Fyrst þarf að velja „Search by Dexcom Product“ og svo “Dexcom G6 app”.
Snjallúr og Dexcom
Hægt er að tengja Dexcom við helstu snjallúr sem eru í boði á Íslandi. Auðvelt er að tengja Apple Watch við iPhone síma og Samsung Watch 4 eða 5 við Samsung Galaxy síma. Nokkrar tegundir af Garmin úrum virka einnig vel, ásamt nokkrum öðrum úrategundum sem í boði eru.
Það eru mikil lífsgæði að geta séð blóðsykurtöluna í úrinu. T.d. þegar þú ert að keyra farartæki eða í vinnuaðstæðum þar sem erfitt getur verið að skoða símann reglulega. Einnig í hreyfingu, t.d. á skíðum, í hlaupum, crossfit eða í þeim aðstæðum sem síminn er ekki við hendina. Tengingin er þó háð því að síminn sé í sama herbergi og notandinn (um 6 metra Bluetooth tenging).
Mismunandi er hvort úrin tengjast beint Dexcom eða hvort þurfi að fara lengri leið að því að tengja þau við Dexcom. Apple Watch tengist yfirleitt beint við Dexcom en fyrir Samsung Galaxy úr þarf að sækja sérstakt app í símann sem heitir Blose. Þar þarf að skrá inn notendanafn og lykilorð hjá Dexcom til að það virki. Önnur leið til að tengjast Samsung er að sækja app, bæði í símann og úrið sem heitir Wear Installer.
Sjá myndband hér fyrir neðan: