





Game Ready tæki fyrir kæli- og þrýstimeðferð
Á lager
Game Ready GRpro 2.1
Öflug og hraðvirk kæli- og þrýstingsmeðferð eftir meiðsli og aðgerðir og fyrir endurheimt íþróttafólks
Game Ready er leiðandi endurheimtartæki sem sameinar kælingu og þrýstingsmeðferð til að draga hratt úr bólgum, verkjum og stífleika. Tækið er hannað í samvinnu við lækna, sjúkraþjálfara og íþróttamenn og er notað á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og hjá afreksíþróttaliðum um allan heim.
Game Ready veitir mun skilvirkari meðferð en með hefðbundnum kælipokum þar sem kælingin helst stöðug og þrýstingurinn hjálpar til við að draga úr bjúg og blóðflæði eykst til skemmda vefja.
Notað af sjúkraþjálfurum, íþróttafélögum og afreksfólki í íþróttum með góðum árangri
Tækið er mjög einfalt í allri notkun, notar vatn og klaka.
Hægt er að fá ýmsa aukahluti, svo sem:
Tösku með axlaról
Rafhlöðu þar sem ekki er aðgengi að rafmagni
Mismunandi gerðir af hulsum fyrir: Ökkla, hné, mjöðm, axlir o.fl.







