
M2 Multi Tip Big sturtustóll með stýripinna
Ekki til á lager
Notkun stýripinnans
Stýring hjólastólsins: Hægt er að stjórna hjólastólnum á einfaldan hátt með stýripinnanum. Hjólastóllinn hreyfist í þá átt sem stýripinnanum er hallað. Þegar stýripinnanum er sleppt hemlast afturhjólin sjálfkrafa og hjólastóllinn stöðvast.
Staðsetning stýripinnans: Hægt er að staðsetja stýripinnann annaðhvort fyrir framan notandann eða aftan við hann. Notið handskrúfuna til að festa stýripinnann í þeirri stöðu sem hentar best.
Hraðastilling: Hægt er að stilla aksturshraða hjólastólsins með því að snúa stillihnappinum. Snúið honum til vinstri til að minnka hraðann og til hægri til að auka hann.
Flauta: Hjólastóllinn er búinn flautu sem virkjuð er með því að ýta á hnappinn í miðju stýriborðsins.
Hleðslustaða rafhlöðunnar: Á stýriborðinu er ljós sem sýnir hleðslustöðu rafhlöðunnar. Þegar grænu ljósin hætta að loga skal setja hjólastólinn í hleðslu.
Athugið! Ef rafhlöðurnar tæmast of mikið geta þær skemmst og orðið óhlaðanlegar. Mikilvægt er að hlaða hjólastólinn reglulega og forðast að rafhlöðurnar tæmist alveg.



