Höggbylgjur, Shockmaster 500
Ekki til á lager
Gymna
Shockmaster 500 er glæsilegt höggbylgjutæki með mjög hljóðlátri olíukompressu og
vagni með skúffu fyrir aukahluti.
Mögulegt að hafa tvö höfuð tengd, eitt fylgir
með. Kemur með 15mm applicator, 15 mm deep impact og D-Actor 20mm
applicator.
Hámarksþrýstingur 5 bör, tíðni 21 Hz, tíðni með V-actor 35Hz.
Tækið er með 10" snertiskjá og er afar
notendavænt. Það býður upp á frjálsa meðferð (quick start), forstillt
prógröm (þeim fjölgar ört þar sem rannsóknum á meðferðinni fjölgar). Leiðbeint
er um þrýsting í meðferð, tíðni högga og fjölda auk þess sem myndir koma á
skjáinn sem leiðbeina um staðsetningu. Hægt að vista prógröm fyrir fjölda
skjólstæðinga (undir nafni).
Medical E-book er innbyggð í tækið.
Uppfærsla á hugbúnaði
Gymna framleiðir einnig Shockmaster 300, sem er mun minna tæki og mögulegt að flytja það með sér.