







Blóðtökustóll Sensa Flex A4 hæðarstillanlegur
Sensa Flex A4 meðferðarstóll sem hentar mjög vel til blóðtöku, lyfjagjafa ofl.
Þessi stóll er hæðarstillanlegur, 57-87 cm og með rafknúinni stillingu á baki (0°-81°), sethluta 7°- 20° og fótahluta -77°-20°. Í Trendelenburg stöðu 20°. Lengd 198,7 cm (í útafliggjandi stöðu), heildarbreidd 84,4cm. Armar eru með lágum fleyg, þeim er hægt að lyfta upp, snúa frá og halla. Mótaðir armpúðar og hærri fleygar fáanlegir sem aukahlutir. Einnig hægt að panta meira stillanlega arma. Áklæði er tveggja laga svampur, 7cm þykkt, mjúkt. Hnakkapúði í sama lit og áklæði. Er á 10 cm samlæstum hjólum. Burðargeta 200kg.
Aukahlutir s.s. IV-stöng, samlæst 10cm hjól, pappírsrúlluhaldari, keyrsluhandfang, mjóbakspúði, glært hlífðarplast á fótenda og arma. Val um 7 liti á áklæði án aukagreiðslu og 9 til viðbótar gegn aukagreiðslu.
Er einnig fáanlegur í fastri hæð (Sensa Flex A3).