Multi Tip Standard rafknúinn sturtustóll

Vörunúmer: HMNA310801-B

Á lager

Í samningi við

Sjúkratryggingar

M2 Multi Tip Standard er sturtu- og salernisstóll með rafknúinni stillingu á sethæð og sethalla (tilt).

Stiglaus rafknúin stilling á sethæð og sethalla veitir þægindi fyrir notanda og betri vinnuaðstæður fyrir aðstoðarfólk. Framhalli 5° og afturhalli 35°.
Seta með góðu úrtaki og armar úr mjúkum PU svampi. Armar eru upplyftanlegir með sjálfvirkri læsingu sem tryggir að þeir haldist í réttri stöðu þegar stólnum er hallað. 
Bak úr netefni sem hægt að aðlaga að notanda og má þvo á 80°C
Lipur 125 mm dekk með vörn gegn óhreinindum og hárum. Bremsa á 3 hjólum og stefnulæsing á því fjórða.
Höfuðstuðningur er hæðar og dýptarstillanlegur. Mjaðmabelti fylgir stólnum.

Fjölbreytt úrval aukahluta s.s mjúk seta og lok á setu, vinkilstillanlegar fóthvílur, kálfastuðningur, skvettivörn, þverslá, höfuðstuðningar ofl. Sjá aukahlutalista.

Tæknilegar upplýsingar:
Sethæð: 50-95 cm
Setbreidd: 46 cm
Bil á milli arma:  46 cm
Setdýpt: 44 cm
Hámarksþyngd notanda: 150 kg
 
Sethalli (tilt): 5° fram og 35° aftur á bak.
Utanmál: sjá mynd
Bak: 45 x 43,5 cm BxH
Þyngd stóls: 36 kg
Stærð hjóla: 125 mm

Close
Close

Fyrirspurn um vöru